|
|
|
Færslur: 2012 Febrúar22.02.2012 21:29Pool 32 Mag![]() Ég rakst á ansi skemmtilegt veiðivefrit, Pool 32 Mag, mikið af frábærum veiðimyndum og pistlum. Þetta rit er alveg fríkeypis og endilega skoðið það og linið þjáningarnar þar til 1.apríl rennur upp. Skrifað af Ritstjóri 17.02.2012 14:27Risableikja![]() Nú styttist heldur betur í fyrsta veiðitúrinn og hver veit nema að einhver heppinn veiðimaður setji í eina risableikju eins og veiddist í Skorradalsvatni 1985. Það er helst í Soginu og Varmá sem menn geta átt von á stórum bleikjum, allt að 10 pundum og jafnvel enn stærri. Það hefur verið stefna okkar Sogsmanna undanfarin ár að sleppa öllum stórum bleikjum í Soginu og vonum við að aðrir veiðimenn fari að okkar dæmi. Af veiðileyfamálum er það að frétta að ritstjórinn hefur þegar tryggt sér 10 daga í Soginu í vor og sumar og ef ég þekki kauða rétt þá á bara eftir að bætast við :) Skrifað af Ritstjóri 01.02.2012 10:24In Memoriam![]() Ritstjórinn á góðri stundu með klettinn góða í bakgrunninn. Mynd: Björn Halldórsson. Okkur voru að berast heldur leiðinlegar fréttir úr Stóru Laxá. Kletturinn sem stóð upp úr hinum fornfræga veiðistað IÐU á svæði lll er fallinn ! Það var í leysingum síðustu daga sem klakaframburður mun hafa rutt klettinum í burtu, nú stendur bara smá nibba upp úr. Við Sogsmenn höfum átt margar góðar stundir við klettinn fagra undanfarin ár og er því mikil eftirsjá af honum. Hér er hægt að skoða nýjar myndir af staðnum á vef Lax-á: Skrifað af Ritstjóri
Flettingar í dag: 48 Gestir í dag: 24 Flettingar í gær: 117 Gestir í gær: 55 Samtals flettingar: 242769 Samtals gestir: 76711 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 14:45:10 |
Svona erum við Farsími: 8455330Tölvupóstfang: sogsmenn@gmail.comUm: Sogsmenn eru nokkrir fuglar sem hafa stundað veiðar í Soginu í mörg ár og sumir frá fæðingu.Eins og maðurinn sagði " bara að hafa gaman af þessu "Eldra efni
Tenglar
|