SOGSMENN

Vafraðu um


Svona erum við

Farsími:

8455330

Um:

Sogsmenn eru nokkrir fuglar sem hafa stundað veiðar í Soginu í mörg ár og sumir frá fæðingu.Eins og maðurinn sagði " bara að hafa gaman af þessu "

Á að skella sér til veiða 1.apríl ?

 Já

 Nei


Sýna niðurstöður

Tenglar

Fréttir og tilkynningar

5.3.2010

Erfið bið


"Vorveiði"  Vonandi verðum við heppnari með veðrið.  Mynd: Stefán Kristjánsson.

Já það styttist í 1.apríl :) og þá má búast við að margir veiðimenn fari á stjá, enda orðnir óþreyjufullir í að bleyta í færi.
Við Sogsmenn erum klárlega í þessum hóp, enda ætlum við í Sogið og Varmá eins og áður hefur komið fram.
Fréttir verða færðar þjóðinni af þessum túrum strax um kvöldið :)

Við höfum verslað töluvert á vefnum eftir að sala hófst, þá aðalega í Soginu sem er okkar á eins og fólk ætti að vera búið að fatta :)
Enn eru til góð leyfi á góðu verði í fjölmörgum ám, bara að skella sér á þetta sem fyrst.

Svo vill ég minna á opið hús í kvöld hjá SVFR sem er taumlaus skemmtun að vanda enda eðalpiltar sem stjórna aðgerðum þar.

Skrifað 5.3.2010 kl. 9:09 af Ritstjóri

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.2.2010

Sumarið 2010


Ásgarður í blíðskapar veðri síðasta sumar. Mynd: Tómas Sigurðsson.

Nú þegar úthlutun SVFR er lokið eru menn mis ánægðir með niðurstöðuna eins og gengur en við Sogsmenn sóttum um slatta í Ásgarði en fengum fátt sem við sóttum um enda hefur ásókn í ódýrar þriggja stanga ár aukist mikið í kreppunni.
Það er greinilegt að Sogið er að verða vinsælla hjá veiðimönnum enda var laxveiði mjög góð síðasta sumar, einnig er búið að auka möguleika á bleikjuveiði til muna með lengri veiðitíma sem veldur okkur nokkrum áhyggjum :/ . Við sem þekkjum Sogsbleikjuna vel vitum að það er mjög auðvelt að þurrka upp stofninn á stuttum tíma því skorum við á veiðimenn að sleppa þessum stóru hlussum sem eru oft um 5-8 pund og jafnvel 15 ára gamlar.
Skemmtilegara að geta átt von á því að veiða þær aftur :)
Annars er sumarið allt að skýrast hjá okkur Sogsmönnum, búið er að bóka slatta af leyfum, bæði allir saman og í sitt hvoru lagi. Hér koma nokkur dæmi:
Sogsmenn verða beggja meginn Ingólfsfjalls þann 1.apríl bæði í Ásgarði og Varmá :)
Gourmet túrinn er um miðjan júlí í Ásgarði.
Tveir túrar í Stóru-Laxá í september, fyrst á svæði lll með spúsum okkar og svo á svæði 1-2 strax á eftir, bara að vonast eftir rigningu þá gætu hlutirnir gerst :)
Önnur leyfi sem ritstjóra er kunnugt um eru: Laxá í Kjós, Laxá í Refasveit, Laugardalsá, Víðidalsá og ýmislegt  sem á eftir að bætast við sem greint verður frá síðar.
 Eins og fólk sér þá verður ritstjórinn ansi upptekinn í sumar við að færa ykkur fréttir af veiði :) Nú er bara að telja niður !!
.

 

Skrifað 9.2.2010 kl. 20:32 af Ritstjóri

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 39
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 110
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 93849
Samtals gestir: 29520
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 12:14:51